flugfréttir
Aukinn stuðningur við þriðju flugbrautina á Heathrow
Frá Heathrow-flugvellinum í London
Heathrow-flugvöllur hefur fundið fyrir auknum stuðningi við þriðju flugbrautinni sem hentugustu lausnina í flugvallarvanda Bretlands en farþegafjöldi um flugvöllinn jókst um 1,5 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins.
Heathrow-flugvöllur og Gatwick-flugvöllur keppast nú um að fá leyfi til að hefja framkvæmdir á nýjum flugbrautum
en sérstök flugvallarnefnd mun meta og velja þá lausn sem mun henta best þegar þar að kemur og skila
niðurstöðu sinni.
Flugvallarnefndin afskrifaði nýlega tillögu um nýjan risaflugvöll á manngerði eyju við ósa Thames-árinnar sem var hugarfóstur Boris
Johnson, borgarstjóri Lundúna.
"Fólk er að sjá að stækkun Heathrow-flugvallar er ekki bara ein besta lausnin í flugvallarvandanum því við erum líka
að finna fyrir stuðningi frá fyrir frá samfélaginu, fyrirtækjum, stjórnmálamönnum og viðskiptafólki út um allt Bretlands", sagði
John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow Airports.
Um 80 milljónir farþega fara um Heathrow-flugvöll í dag en með þriðju flugbrautinni gæti flugvöllurinn tekið á móti
130 milljónum farþega á ári.
Talið er að flugvallarnefndin muni gera upp hug sinn og tilkynna þá lausn sem verður fyrir valinu í maí í vor.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.