flugfréttir
Air Armenia kennir Rússum um að félagið hafi aflýst öllu flugi
Boeing 737-500 vél Air Armenia
Öllu flugi hefur verið aflýst hjá Air Armenia og hefur félagið fellt niður farþegaflugi fram til 20. desember að minnsta kosti vegna fjárhagslegra erfiðleika sem félagið segir að sé Rússlandi að kenna.
Rússneska flugumferðarþjónustan Rosaeronavigatsia hefur bannað að veita Air Armenia aðgang um flugstjórnarsvæði
Rússlands þar sem flugfélagið skuldar flugleiðsögugjöld en bannið hefur valdið uppnámi meðal fjárfesta og viðskiptavina félagsins.
Air Armenia segir að ákvörðun Rosaeronavigatsia um að meina félaginu aðgang að rússneskri lofthelgi hafi skaðað
ímynd félagins sem hefur neyðst til að draga úr umsvifunum með því að kyrrsetja eina þotu en nú liggur allt flug niðri.
Air Armenia var stofnað sem fraktflugfélag árið 2003 en í fyrra hóf það farþegaflug í fyrsta sinn og hefur félagið flogið
til borga í Rússlandi, fyrrum löndum Sovíetríkjanna og til Frankfurt og París.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.