flugfréttir
Isavia styrkir barna- og unglingastarf á Suðurnesjum
Forsvarsmenn og iðkendur félaga innan Íþróttabandalags Reykjanesbæjar ásamt Birni Óla Haukssyni forstjóra Isavia.
Styrktarsjóður Isavia veitir í ár styrki til barna- og unglingastarfs á Suðurnesjum. Styrkjunum er ætlað að styðja við allar greinar íþrótta og stuðla að auknum möguleikum barna- og unglinga til að stunda sínar íþróttir og fara í nauðsynlegar æfinga- og keppnisferðir.
Styrkirnir voru á dögunum afhentir íþróttarféögum í Garði, Sandgerði, Vogum, Grindavík og þeim aðildarfélögum Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB) sem þegar eru eða eru við það að verða fyrirmyndarfélög Íþróttasambands Íslands.
Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia veitti styrkina til félaganna. „Keflavíkurflugvöllur er stærsti vinnuveitandinn hér á Suðurnesjum og því ákváðum við að styrkveitingar í ár skyldu renna til barna- og unglingastarfs hér á svæðinu. Við vitum að það er brýn þörf fyrir slíkan stuðning og við vonum að styrktarféð komi nærsamfélagi flugvallarins að góðum notum.“
Ingigerður Sæmundsdóttir formaður ÍRB sagðist afar ánægð með framtak Isavia. „Uppbygging á íþróttastarfi fyrir börn og unglinga er fjárfrek og því er afar ánægjulegt þegar öflug fyrirtæki eins og Isavia sjá sér fært að styðja við starfið með myndarlegum hætti. Þessir fjármunir munu því koma sér afar vel hjá félögum innan ÍRB sem hafa uppfyllt eða eru við það að uppfylla öll skilyrði um fyrirmyndafélög hjá ÍSÍ.“
Forsvarsmenn og iðkendur félaga innan Íþróttabandalags Reykjanesbæjar ásamt Birni Óla Haukssyni forstjóra Isavia.
Iðkendur íþróttafélaga í Sandgerði, Garði, Vogum og Grindavík ánægðir með styrkina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.