flugfréttir

Geimflugvél Richard Branson fórst í tilraunaflugi í kvöld

- Aðstoðarflugmaður lést er SpaceShipTwo vél Virgin Galactic hrapaði til jarðar

Kalifornía

31. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 20:56

Flak SpaceShipTwo í Mojave-eyðimörkinni í dag

Að minnsta kosti einn er látinn eftir að geimflugvél Virgin Galactic fórst í tilraunaflugi yfir Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu í dag en fyrirtækið er í eigu milljarðamæringsins og ævintýramannsins Richard Branson sem á Virgin-samsteypuna og flugfélagið Virgin Atlantic.

Slysið átti sér stað um kvöldmatarleytið að íslenskum tíma og var SpaceShipTwo að losa sig frá móðurskipinu, WhiteKnightTwo, þegar "alvarlegt frávik" varð að sögn Virgin Galactic með þeim afleiðingum að geimflugvélin hrapaði til jarðar.

SpaceShipTwo átti að hefja flug út í geiminn fyrir lok ársins

Aðstoðarflugmaður ferjunnar lést en flugstjórinn náði að skjóta sér út í tæka tíð en í sjónvarpsfréttum vestanhafs mátti sjá geimferjuna SpaceShipTwo í tveimur hlutum á jörðinni en Virgin Galactic segir að geimflugvélin er ónýt.

Richard Branson þakkaði þann stuðning sem hann hefur fengið frá fólki á Twitter-síðu sinni í kvöld en hann er á leið til Mojave í Kaliforníu en óvíst er hvaða áhrif slysið hefur á geimflugsáætlun Virgin Galactic.

800 manns hafa þegar pantað sér flug út í geiminn til að upplifa þyngdarleysi og sjá jörðina utan úr geimnum.

Þetta var fyrsta tilraunaflug Virgin Galactic í níu mánuði og var verið að gera tilraunir með nýja tegund af eldsneyti er slysið varð en Virgin Galactic mun vinna náið með bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) að rannsókn slyssins.



Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga