flugfréttir

Flug með farþega út í geim mun frestast um einhver ár eftir slysið í gær

- Sérfræðingar telja að Virgin Galactic þurfti að gera heimavinnuna sína betur

1. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 07:46

Geimflugvélin SpaceShipTwo sem fórst í dag var smíðuð árið 2009

Sérfræðingar telja að flugferðir út í geiminn eigi eftir að frestast um einhver ár eftir að SpaceShipTwo, geimflugvél Virgin Galactic, fórst í gær í tilraunaflugi í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu.

Eftir nokkrar seinkanir vonaðist Virgin Galactic til þess að fyrirtækið gæti loksins byrjað að fljúga með fólk út í geiminn fyrir lok þessa árs fyrir þá sem eru nægilega efnaðir til að greiða 30 milljónir fyrir að fá að upplifa 5 mínútna þyngdarleysi.

"Við munum ekki sjá neinar flugferðir út í geiminn með farþega á næsta ári og sennilega ekki heldur í nokkur ár eftir það", segir Marco Caceres, geimferðasérfræðingur hjá Teal Group í Washington.

"Þetta mun setja áform Virgin Galactic á hilluna um sinn í a.m.k. 2 ár eða meira", segir Caceras sem segir einnig að enn sem komið er Virgin Galactic verið fremst meðal þeirra fyrirtækja sem hafa lýst því yfir að ætla hefja farþegaflug út í geim.

Brak úr SpaceShipTwo í fréttum CNN

Virgin Galactic var þegar komið með 650 viðskiptavini á lista sem hugðust ætla að fljúga með fyrirtækinu út í geim en þar á meðal má nefna frægt fólk á borð við Lady Gaga, Justin Bieber, Aston Kutcher, Leonardo diCaprio og einnig og þá hafði eðlisfræðingurinn Stephen Hawkins pantað sér far.

Þurfa að gera miklu fleiri tilraunir áður en hægt er að hefja flug út í geim með farþega

"Þetta mun seinka þeirri þróun sem átt hefur sér stað í geimflugsáætlunum með farþega út í geim og einnig tefur það að þróunin takmarkast enn sem komið er við flug innan sporbaugs jarðar

Caceras segir að Virgin Galactic muni þurfa að gera enn frekari og umsvifameiri tilraunir áður en flug með farþega getur orðið að veruleika - "Því miður þá var ekki búið að framkvæma nægilega margar prófanir með þessa vél - Þeir hafa gert margar tilraunir á jörðu niðri en þeir hafa ekki framkvæmt nógu mikið í loftinu - Þeir þurfa fljúga miklu fleiri tilraunaflugferðir áður en þeir geta farið út í geim", segir Caceras.

John Logsdon, fyrrum yfirmaður hjá geimvísindadeild George Washington-háskólans, segir að þetta muni skvetta köldu vatni á þá sem höfðu hugsað sér að fara út í geim.

"Það var mikið kapp lagt á að framkvæma tilraunir og heill geimflugvöllur byggður sem átti að endurspegla nýtt upphaf í flugi með farþega út í geim en það getur verið að þessar væntingar hafi verið of miklar", segir Logsdon.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga