flugfréttir

MH370: Vilja ákveða lokadag leitarinnar og úrskurða flugvélina „týnda“

- Ættingjar í uppnámi eftir tilkynningu frá rekstarstjóra Malaysia Airlines

11. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:58

Ættingjar og aðstandendur þeirra sem voru um borð í flugi MH370 eru í lausu lofti eftir þessa tilkynningu

Óvissa hefur gripið um sig varðandi framhald leitarinnar að flugi MH370 meðal aðstandenda og ættingja eftir að Malaysian Airlines lýsti því yfir að malasíska farþegaþotan yrði mögulega úrskurðuð endanlega „týnd“.

Voice 370, hópur ættingja og aðstandenda þeirra sem voru um borð í malasísku farþegaþotunni, segja að Hugh Dunleavy, rekstrarstjóri Malaysia Airlines, hafi lýst því yfir að félagið sé í viðræðum við malasísk og áströlsk yfirvöld um að ákveða lokadagsetningu leitarinnar og verði vélin eftir það úrskurðuð „týnd“.

Margir aðstandendur þeirra sem voru um borð í flugi MH370 eru æfir yfir þessum fregnum og segja þetta bæði "skelfileg og ruglingsleg" ummæli.

Hugh Dunleavy, rekstrarstjóri Malaysia
Airlines

Samhæfingarmiðstöðin í Ástralíu, þaðan sem leitinni er stjórnað, hefur gefið út yfirlýsingu varðandi áhyggjur hópsins Voice 370 í kjölfar ummæla Malaysia Airlines þar sem kemur fram að hugsanleg ákvörðun flugfélagsins að stimpla vélina sem týnda sé mjög truflandi fyrir ættingja og aðstandendur.

"Þetta er aðeins persónuleg skoðun Dunleavy sem endurspeglar að flugfélagið er ekki með á nótunum yfir leitaraðgerðirnar sjálfar. - Ástralía heldur áfram að stjórna leitinni að flugi MH370 fyrir hönd Malaysíu og erum við staðráðin í að halda áfram að gera allt sem í okkar valdi stendur í leitinni að flugvélinni", segir í tilkynningu.

„Verið að afskrifa leitina með þessu“

Ættingja eru samt ráðvilltir eftir tilkynninguna frá Malaysia Airlines og hafa vaknað upp spurningar hvort að leitin sé þá á enda eða hvort verið sé að ákveða að úrskurða vélina týnda svo hægt sé að hefja tryggingamál.

Sérfræðingur einn, sem fylgst hefur með leitinni að MH370, segir að að með slíkri yfirlýsingu sé verið að afskrifa leitina. "Það sem verið er að tala um er að leitin er ekki að skila neinum árangri, og hefur ekki gert hingað til, og er ólíklegt að hún muni bera neinn árangur".

Voice 370 hópurinn segir að þessi yfirlýsing brjóti niður allar vonir meðal aðstandenda og auki þær þjáningar sem þeir hafa þurft að ganga í gegnum en sl. laugardag voru 8 mánuðir síðan að malasíska farþegaþotan hvarf og er talið að hún hafi endað för sína lengst suður í Indlandshafi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga