flugfréttir

Rússar birta gervitunglamynd sem á að sýna er flug MH17 var skotið niður

- Bandaríkin segja myndina tilraun Pútins til að sópa sannleikanum undir teppi

16. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 07:26

Gervitunglamyndin sem sýnd var á Channel One í Rússlandi í gær

Rússar segjast hafa undir höndum gervitunglamynd sem sýnir augnarblikið er úkraínsk orrustuþota skaut flugskeyti að Boeing 777 vél Malaysian Airlines, flug MH17, yfir austurhluta Úkraínu sl. sumar.

Það var sjónvarpsstöðin Channel One sem sýndi í gær gervitunglamynd en Rússar segja að hún sanni að flug MH17 hafi verið skotin niður úr lofti af úkraínskri orrustuþotu með hitaloftskeyti.

Það var Ivan Andriyevsky, formaður samtaka verkfræðinga í Rússlandi, sem kom fram í rússneska sjónvarpinu og sýndi gervitunglamyndina sem hann segist hafa fengið hana í tölvupósti frá flugumferðarstjóra, George Beatle að nafni.

Andriyevsky segir að í tölvupóstinum hafi hann fengið gervitunglamynd sem sýnir hvar skeyti er skotið af vinstri væng á orrustuþotu sem hæfir malasísku vélina í hægri vænginn og hreyfilinn.

"Við sjáum mynd sem tekin með gerivhnetti sem var um sporbaug jörðu í lágri hæð og við höfum grandskoðað þessa mynd og er ekkert sem bendir til þess að hún er fölsuð", segir Andriyevsky.

Telja gervitunglamyndina vera falsaða og segja vélina vera Boeing 767

Hvíta Húsið segir að Moskva sé með þessu að reyna að fela sannleikann og komast undan því að bera ábyrgð á hörmungunum sem kostuðu 298 manns lífið.

Nokkrir sérfræðingar segja að gervihnattarmyndin sé fölsuð og sé um að ræða mynd sem tekin var árið 2012 og Mark Solonin, rússneskur rithöfundur, segir að myndin sé samsett og sé landslagið ekki í samræmi við umhverfið á þeim stað þar sem vélin fórst nálægt bænum Hrabove.

Vladimir Pútin, Rússlandsforseti, skoðar gervitunglamyndina sem á að sanna sakleysi Rússlands

Sumir segja að með myndinni sé verið að koma af stað áróðri til að bjarga ímynd Vladimir Pútins, forseta Rússlands, og koma honum undan þeirri gagngrýni sem hann hefur orðið fyrir í kjölfar atviksins.

Einnig hafa einhverjir sérfræðingar bent á að gervitunglamyndin sýni Boeing 767 vél en ekki Boeing 777. Þá hafa Twitter-notendur tjáð sig um gervitunglamyndina og bendir einn m.a. á að lógo Malaysian Airlines á vélinni sé á röngum stað og annar tekur fram að að búið sé að setja mynstur á vængi orrustuþotunnar í úkraínsku einkennislitunum með myndvinnsluforritinu Photoshop með afspyrnu lélegum vinnubrögðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga