flugfréttir
Nýtt myndband birt sem tekið var sekúndum eftir að MH17 fórst
Íbúar Hrabove töldu að enn önnur úkraínsk herflugvél hefði verið skotin niður
Fjölmiðlar víðsvegar um heim birtu í gærkvöldi myndband sem tekið var nokkrum sekúndum eftir að Boeing 777 vél Malaysia Airlines, flug MH17, hrapaði til jarðar í Úkraínu þann 17. júlí sl.
Það var AP-fréttastöðin sem birti myndbandið sem íbúi einn í bænum Hrabove tók en á því má sjá þorpsbúa flykjast að
kolsvörtum reykjarmekki og er talið að myndbandið sé það fyrsta sem var tekið upp eftir að vélin hrapaði á leið sinni
frá Amsterdam til Kuala Lumpur.
Í myndbandinu heyrist einn íbúi spyrja um afdrif flugstjórans en flestir töldu að þarna hefði úkraínsk herflugvél verið
skotin niður af rússneskum aðskilnaðarsinnum sem höfðu ítrekað skotið nokkrar slíkar vélar niður með loftskeyti og ætíð
handsamað flugmennina.
Þá heyrist einn spyrja hvort tvær vélar hefðu verið skotnar niður í einu fyrst það væri svona mikið brak en fólk í kringum
hann segja honum að þetta hafi verið ein vél sem hrapaði en ekki tvær vélar.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.