flugfréttir

Kínverjar kynna rafmagnsflugvélina RX1E

- Rekstrarkostnaðurinn um 406 krónur á klukkustund

17. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 08:46

RX1E rafþyrlan á China International Aviation and Aerospace Exhibition flugsýningunni

Kínverjar hafa kynnt fyrstu rafflugvélina sem framleidd verður þar í landi en þyrlan var frumsýnd á dögunum á China International Aviation and Aerospace Exhibition flugsýningunni sem fram fór í Zhuhai í Kína.

Flugvélin, sem kallast RX1E, verður fjöldaframleidd á næstunni og mun hún fá lofthæfisskírteini fyrir lok ársins og mun framleiðslan hefjast á næsta ári.

Framleiðendur vélinnar sjá fram á mikla eftirspurn eftir flugvélum sem munu ganga fyrir rafmagni og segja hönnuðir hennar að Kína verður leiðandi á sviði framleiðslu á rafmagnsflugvélum á næstunni.

Framkvæmdir eru þegar hafnar á verksmiðju þar sem flugvélin verður smíðuð og verða 100 eintök af henni settar saman árlega eftir þrjú ár og mun ein RX1E kosta um 20 milljónir króna.

Flugvélin mun geta flogið í 90 mínútur með fullhlaðnar rafhlöður og verður flugtaksþungi hennar 480 kíló og mun hún geta náð 160 kílómetra hraða á klukkustund.

Um 406 krónur mun kosta að reka rafflugvélina á klukkstund og 100 krónur að hlaða rafhlöðurnar og verður hún því afar hagstæð, auðveld í notkun og verður viðhaldskostnaður hennar mjög lágur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga