flugfréttir
„Gardínustríð“ skollið á meðal áhafna hjá SAS
- Danskir og sænskir flugliðar ósáttir við tjald sem aðskilur hvíldarherbergin
Airbus A340 vél frá SAS (Scandinavian Airlines)
Gardínustríð er skollið á meðal danskra og sænskra flugliða hjá Scandinavian Airlines (SAS) sem hefur orðið til þess að félagið hefur neyðst nokkrum sinnum til þess að manna breiðþotur sínar í Ameríkuflugi með norskum áhöfnum frá Osló.
SAS hefur nokkrum sinnum sl. mánuði þurft að fljúga norskum flugliðum frá Osló til Stokkhólms til að manna
Airbus A330 og A340 vélarnar til að komast hjá ágreinindi meðal flugliða með tilheyrandi kostnaði.
SAS er um þessar mundir að koma fyrir nýju farþegarými um borð í breiðþotur félagsins en við breytingarnar
mun harður veggur fyrir hvíldarherbergi áhafna víkja fyrir fortjaldi sem er dregið fyrir.
Í kjarasamningi sem SAS gerði við sænska flugliða kemur fram harður veggur skuli aðskilja hvíldarherbergið frá farþegum
sem stangast á við breytingarnar á farþegarýminu en fortjald er það sem koma skal um borð í nýjum A330 vélum frá SAS.
SAS hefur fjórar Airbus A330 vélar og átta A340 en áttunda vélin er innréttuð á annan hátt en A340 vélarnar
þar sem hengi aðskilur hvíldarherbergi frá farþegum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.