flugfréttir
Hundur fær draumastarfið á flugvellinum í Christchurch
- Tíkin Jet mun sjá um að hræða burtu fugla
Hundur hrekur burtu fugla á flugvelli í Bandaríkjunum
Hundur á Nýja-Sjálandi hefur fengið starf á flugvellinum í Christchurch sem virðist vera draumastarf allra hunda.
Border Collie tíkin "Jet", sem er 14 vikna gömul, hefur fengið það hlutverk að hrekja burtu fugla frá flugbrautunum
á Christchurch-flugvelli en áður en tíkin mun hefja störf þarf hún að gangast undir stranga þjálfun.
Jet þarf m.a. að læra að fara eftir fyrirmælum frá starfsfólki og hlýða skipunum, venjast hávaðanum á flugvellinum
og greina í sundur blístur frá flugvallarstarfsmönnum svo hún geti byrjað að hræða fuglana í burtu.
Norm Mannix, yfirmaður yfir dýradeild Christchurch-flugvallarins, segir að hann hafi þegar staðið tíkina af því að vera
sofandi á vaktinni en segir jafnframt að m.v. þá þjálfun sem hún hefur gengist undir þá á hún það svo sannarlega skilið.
"Hingað til þá höfum við notað sírenur, lasergeisla, loftbyssur og hátíðnihljóð en hundurinn Jet mun færa okkur
nýjar aðferðir", segir Mannix.
"Fuglar eru snjallir og þeir sjá í gegnum sömu aðferðirnar eftir smá tíma og vita hvenær er verið að plata þá þannig það
þarf að skipta um aðferðir".
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.