flugfréttir
Jump mun hefja lágfargjaldaflug fyrir Lufthansa næsta haust
- Tampa í Flórída verður fyrsti áfangastaðurinn
Airbus A340-300 vél Lufthansa
Lufthansa hefur valið vinnuheitið „Jump“ fyrir nýtt fyrirhugað lágfargjaldarfélag sem mun hefja starfsemi sína næsta haust.
Fyrsta flug félagsins verður frá Frankfurt til Tampa í Flórída sem mun hefjast þann 29. september árið 2015 og verður
flogið 5 sinnum í viku.
Ólíklegt er að „WorldWings“ verði nafnið á nýja flugfélaginu eins og til stóð í sumar þegar Lufthansa tilkynnti fyrst áform
sín um að stofna lágfargjaldafélag sem myndi fljúga til fjarlægra áfangastaða.
Lufthansa ætlar sér með félaginu að endurheimta sinn hlut af sólarlanda- og skemmtiáfangastöðum félagsins sem hafa
fallið í hendurnar á flugfélögum á borð við Emirates, Turkish Airlines, Qatar Airways og Etihad Airways.
Jump mun koma til með að nota þrjár Airbus A340-300 vélar úr flota Lufthansa en með tíð og tíma mun Jump fá 14 Airbus A340
vélar af þeim átján sem Lufthansa hefur í flota sínum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.