flugfréttir
Átta flugfélög í Svíþjóð munu sameinast næsta haust í eitt félag
ATR 72-212A vél Sverigeflyg
Til stendur að sameina átta flugfélög í Svíþjóð saman í eitt flugfélag en sjö flugfélög eru dótturfélög Braathens Aviation.
Flugfélögin átta eru Gotlandsflyg, Malmö Aviation, Kullaflyg, Sundsvallsflyg, Blekingeflyg, Kalmarflyg, Flysmaaland og Golden Air og er áætlað að sameinungu flugfélaganna verði lokið haustið 2015.
Susanne Dahlberg, rekstrarstjóri Malmö Aviation, segir að með þessu geti eitt flugfélag orðið samkeppnishæfara
í innanlandsfluginu í Svíþjóð en sameinaða flugfélagið mun koma til með að hafa höfuðstöðvar sínar á Bromma-flugvellinum
í Stokkhólmi.
Öll flugfélögin átta fljúga í dag um flugvellina í Ronneby, Bromma, Visby, Norrköping, Ängelholm, Mora, Halmstad, Sundsvall, Växjö, Ängelholm, Kalmar, Trollhättan og Gautaborg og nota félögin vélar á borð við ATR 72-500, Saab 2000, Saab 340, Avro RJ100 og Avro RJ85.
Þá flýgur Malmö Aviation einnig til Kaupmannahafnar, Brussel og til Helsinki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.