flugfréttir
Opið hús á Akureyrarflugvelli í tilefni 60 ára afmælis flugvallarins á laugardag
Frá Akureyrarflugvelli
Isavia, Flugsafn Íslands og Örninn – hollvinafélag Flugsafnsins ásamt fyrirtækjum á Akureyrarflugvelli efna til hátíðar næstkomandi laugardag, 22. nóvember, í tilefni af 60 ára afmæli flugvallarins.
Flugsamgöngur með landflugvélum til Akureyrar hófust á styrjaldarárunum síðari eftir að breski herinn lauk flugvallargerð á Melgerðismelum í Eyjafirði. Flugvöllurinn var endurbættur af Bandaríkjaher og afhentur Íslendingum þegar styrjöldinni lauk.
Flugmálastjórn Íslands stóð fyrir gerð nýs flugvallar á landfyllingu við ósa Eyjafjarðarár sem tekinn var í notkun 5. desember 1954. Nýtt flugstöðvarhús var opnað árið 1961 og flugbrautin lögð bundnu slitlagi árið 1967. Árið 2009 var flugbrautin endurbætt og lengd í 2.400 metra.
Flugstöðin hefur verið stækkuð tvisvar og voru verulegar endurbætur gerðar á eldri hluta hennar árið 2000. Stærð farþegarýmis er 550 fermetrar sem má skipta í þrjá sali þegar millilandaflug er afgreitt.
Afmælishátíðin hefst með móttöku í Flugsafni Íslands kl. 13:30 og að henni lokinni opna Isavia, Flugsafn Íslands, Flugfélag Íslands, Norlandair, Mýflug, Arctic Maintenance, Flugskóli Akureyrar og Suðurflug dyrnar fyrir almenningi og kynna þá fjölbreyttu starfsemi sem stunduð er á flugvellinum.
Kaffi og aðrar veitingar verða í boði og blöðrur fyrir börnin og eru allir boðnir velkomnir!
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.