flugfréttir

Delta Air Lines pantar 50 breiðþotur frá Airbus

- A350-900 verða afhentar árið 2017 og A330-900neo árið 2019

21. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 10:27

Tölvugerð mynd af A350-900 í litum Delta Air Lines

Airbus hefur tilkynnt formlega um staðfesta pöntun frá Delta Air Lines í 50 farþegaþotur af gerðinni Airbus A350 og A330neo.

Delta Air Lines hefur staðfest pöntun í 25 vélar af gerðinni Airbus A350-900 og 25 af gerðinni A330-900neo og er pöntunin metin á 13 milljarða bandaríkjadali samkvæmt listaverði eða sem samsvarar 1.597 milljörðum króna.

Delta Air Lines mun fá A350-900 vélarnar afhentar árið 2017 en Airbus A330-300neo árið 2019.

Pöntunin er sögð vera reiðarslag fyrir Boeing sem missti Delta úr greipum sér í samningaviðræðunum en bandaríski flugvélaframleiðandinn hafði boðið Delta Air Lines Boeing 777 og Boeing 787-9 í staðinn fyrir þær Boeing 747-400 og 767-300ER sem félagið mun skipta út á næstu árum.

"Þegar eitt farsælasta flugfélagið í Bandaríkjunum í dag, flugfélag sem hefur flogið farþegum út um allan heim í yfir 80 ár og hefur 80.000 starfsmenn á sínum snærum, segir "já, við viljum fleiri breiðþotur frá ykkur", þá er það mikil viðurkenning fyrir vöruna", sagði John Leahy hjá Airbus.

Tölvugerð mynd af A330-900neo í litum Delta Air Lines

Boeing segir hinsvegar að ekki sé um neina viðurkenningu að ræða heldur sé ástæðan sú að Boeing hafði ekki laust framleiðslupláss á Boing 787-9 vélinni á þeim tíma sem hentaði Delta Air Lines sem var ástæða fyrir því að Airbus hentaði betur upp á að fá vélarnar sem fyrst afhentar.

Delta Air Lines hafði lýst því yfir að félagið ætlaði að flýta fyrir því að taka Boeing 747-400 vélarnar úr umferð og munu þær síðustu yfirgefa flotann árið 2017.

Delta Air Lines hefur í dag 158 Airbus-vélar í flota sínum sem samanstendur af 57 vélum af gerðinni Airbus A319, 69 Airbus A320, 11 Airbus A330-200 og 21 Airbus A330-300.

Þá á félagið eftir að fá tíu vélar frá Airbus af gerðinni A330-300 og 45 Airbus A321 til viðbótar við þær vélar sem pantaðar voru í gær og á Delta Air Lines því von á að fá 105 vélar frá Airbus samanlagt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga