flugfréttir
Ný sæti bíða eftir að fara um borð í Boeing 757 vél Condor
Ultra Recline sætin bíða í sætaröðum eftir að fá að fara um borð í Boeing 757-300 vél Condor
Thomas Cook vinnur nú að því að koma fyrir nýstárlegri sætum um borð í Boeing 757 vélar sínar.
Hér má sjá myndir sem teknar voru í viðhaldsskýli Thomas Cook í Manchester af splunkunýjum sætum sem bíða eftir því
að verði komið fyrir um borð í D-ABOI sem er af gerðinni Boeing 757-300 og var smíðuð árið 2000 en vélin verður máluð
í litum Condor á næstunni.
Sætin eru af gerðinni Ultra Recline og koma frá fyrirtækinu Acro Aircraft Seating sem framleiðir sæti um borð
í flugvélar á almennu farrými.
Nýju sætin auka bæði þægindi farþega, minnka rekstrarkostnað og gera vélarnar léttari sem dregur úr kolefnaútblæstri.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.