flugfréttir

3C er umfangsmesta viðhaldsskoðun sem gerð hefur verið á flugvél

- Fyrsta 3C skoðunin var gerð á A380 vél Emirates sem tók 55 daga

23. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:47

Aldrei áður hefur farið fram eins umfangsmikil skoðun á nokkurri flugvél í heiminum og sú skoðun fram fór á A380 risaþotu Emirates á dögunum.

3C skoðunin er sú stærsta sem gerð hefur verið og er þetta í fyrsta sinn sem slík skoðun fer fram og var það A6-EDA sem gekkst undir þá skoðun en sú vél var afhent til Emirates í júní árið 2008.

Hver einasta skrúfa var fjarlægð og vélin tekin í sundur ofan í burðarvirkin nánast og var hver einasti hluti vélarinnar athugaður áður en hún var sett saman aftur en það tók tvö hópa flugvirkja 55 daga að framkvæma fyrsti 3C skoðunina.

"Allt ferlið var skipulagt niður í þaula og var enginn tími fyrir seinkun en að kyrrsetja heila þotu í svona langan tíma er mjög dýrt", segir Colin Disspain, yfirmaður yfir flugvirkjadeild Emirates.

"Hérna í Dubai þá erum við að fljúga vélunum í mjög erfiðum aðstæðum, mjög háum hita þar sem mikill sandur er í andrúmsloftinu sem gerir reksturinn erfiðan sem hefur gert það að verkum að Emirates hefur þurft að hækka staðla sína og kröfur".

A6-EDA hafði flogið yfir 20 milljón kílómetra sem samsvarar 27 ferðum fram og til baka til tunglsins og hafði hún farið í yfir 3.000 flugtök og lendingar og flogið með yfir 12 milljón farþega.

Hér að neðan má sjá myndband sem tekið var er vélin fór í gegnum 3C check í viðhaldsdeild Emirates í Dubai en alls voru 1.600 hlutir fjarlægðir úr vélinni og settir aftur saman, skipt var um teppi í gólfi, skipt um klæðningu á innréttingum og barinn um borð í vélinni var einnig tekin í sundur.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga