flugfréttir
Sannfærður um að brak úr MH370 muni skola á land á næstunni við Indónesíu
- Yfirmaður rannsóknarnefndarinnar er tilbúnn með kampavínið
Flugslysasérfræðingurinn Peter Foley er svo sannfærður um að flug MH370 muni koma í leitirnar á næstunni að hann er með flösku af Moët-kampavín tilbúna við höndina
Flugslysasérfræðingurinn Peter Foley spáir því að ráðgátan um hvarf malasísku farþegaþotunnar, flug MH370, muni leysast á næstunni þegar brak úr malasísku farþegaþotunni mun skola upp á land við strendur Indónesíu.
Foley, sem fer fyrir áströlsku flugslysarannsóknarnefndinni, sem stjórnar leitinni að flugvélinni, segir að líklega muni brakið skola upp á land á eyjunni Súmötru.
Foley segist vera svo viss um að ráðgátan muni leysast á næstunni að geymir Moët-kampavín í ísfötu, tilbúinn að taka tappann úr flöskunni um leið og vélin kemur í leitirnar.
Foley gerir ráð fyrir að brakið muni reka á land á eyjunni
Súmötru eftir 9 mánaða ferðalag yfir Indlandshaf
"Það mun eitthvað skola á land á einhverri strönd og eru miklar líkur að það verði á Súmötru", segir Foley sem segir að margt fólk á eyjunni hafi haft samband við lögregluna þar í landi vegna torkennilegra hluta sem það hefur séð reka á land.
Tekur langan tíma fyrir brak að reka yfir hafið
"Við höfum sent eitthvað brak til Boeing og þeir hafa borið kennsl á það en enn hafa þeir ekki staðfest hvort þetta
sé úr malasísku farþegaþotunni - Það tekur mjög langan tíma fyrir hluti að reka yfir heilt haf", segir Foley.
Foley telur að ástæðan fyrir því að ekki hafi tangur né tetur fundist af vélinni vera sú að leitað var í heila 10 daga á röngum
stað eftir að vélin hvarf.
40 manna hópur skiptir vöktum á leitarskipunum þremur sem nú eru við leit til að tryggja að aldrei þurfi að gera hlé
á leitinni.
18.000 eyjur koma til greina - Súmatra líklegasti kosturinn
Indónesía nær yfir 5.100 kílómetra svæði frá Papúa-eyju til norðvesturhluta Súmötru en landið telur alls 18. þúsund eyjar
en aðeins er búið á 1.000 af þeim eyjum en rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu segir að brakið gæti rekið á land á hvaða eyju sem er þótt Súmatra komi sterklega til greina.
Í október var gefin út yfirlýsing þar sem yfirvöld í Indónesíu voru beðin um að vera á varðbergi gagnvart hugsanlega braki
en rannsóknarnefndin hafði gert rekalíkan þar sem líkt var eftir hafstraumum í Indlandshafinu og kom í ljós að hugsanlegt
brak myndi sennilega hafa rekið í áttina að vesturströnd Ástralíu frá þeim stað þar sem talið er að vélin fór ofan í hafið en þaðan hefur brakið borist með hafstraumum norður í átt að Indónesíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.