flugfréttir

Vilja bola Norwegian í burtu frá Bandaríkjunum

- Þingmenn safna undirskriftum til að meina félaginu um varanlegt flugleyfi

26. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:41

Bandaríska þingið ætlar ekki að gera Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóra Norwegian Air Shuttle, auðvelt fyrir í baráttunni við að fá fullt leyfi til að fljúga milli Ameríku og Evrópu

Æ fleiri þingmenn á bandaríska þinginu ætla sér að setja stólinn endanlega fyrir dyrnar fyrir Norwegian Long Haul til að koma í veg fyrir að félagið geti aukið umsvif sín og haslað sér völl í farþegaflugi milli Evrópu og Bandaríkjanna með því að synja félaginu um varanlegt flugleyfi.

192 þingmenn hafa nú þegar skrifað undir undirskriftarlista til að koma í veg fyrir að Norwegian fái endanlegt leyfi til að fljúga yfir Atlantshafið en lágfargjaldafélagið norska hefur nú barist fyrir því í heilt ár að fá fullt flugrekstrarleyfi fyrir Ameríkuflugi.

Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian Air Shuttle, hefur orðið fyrir harðri mótspyrnu í baráttunni við að fá varanlegt flugleyfi og þá einna helst frá félagi bandarískra atvinnuflugmanna (US Pilots Association).

Vilja halda evrópskum lágfargjaldafélögum frá Ameríkumarkaði

Dreamliner-vél Norwegian á flugvellinum í Los Angeles

Bandarískir þingmenn óttast að umsvif Norwegian Air Shuttle eigi eftir að hafa slæmar afleiðingar fyrir bandarísk flugfélög en Norwegian hefur nú þegar tapað fleiri milljónum á því að vera ekki komið með varanlegt flugleyfi til Bandaríkjanna en framkvæmdarstjórinn segist samt vera rólegur fyrir stöðunni eins og er.

"Við höfum séð svona hluti áður og er þetta hluti að miklum áróðri sem er sett fram til að halda lágfargjaldafélögum, eins og Norwegian, frá Ameríkumarkaðinum", segir Anne-Sissel Skånvik, talsmaður Norwegian Air Shuttle.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga