flugfréttir
Einkaþota fór út af braut í flugtaki í London
Einkaþotan út af brautinni á Biggin Hill flugvellinum í London
Gulfstream-einkaþota fór út af braut er hún var í flugtaki á Biggin Hill flugvellinum í Bromley, skammt suður af London sl. þriðjudag.
Tveir flugmenn og sex farþegar voru um borð í vélinni sem var af gerðinni Gulfstream G1159-A og sakaði engan fyrir
utan eina konu sem hlaut minniháttar áverka á ökla en allir voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús þar sem þeir
fengu áfallahjálp.
Mikil mildi þykir að ekki fór verr en tugir lítrar af þotuelsneyti láku frá vélinni og rannsaka bresk flugmálayfirvöld óhappið.
Einkaþotan, sem var smíðuð árið 1984, er í eigu World Heir Inc. í Atlanta í Bandaríkjunum en ekki fylgir fréttinni hvert
förinni var heitið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.