flugfréttir
Farþegaflug með Boeing 747SP formlega á enda
- Iran Air flaug síðasta flugið með stubba-júmbó-vélinni
Iran Air var síðasta flugfélagið til að fljúga Boeing 747SP í áætlunarflugi
Ekkert flugfélag flýgur lengur stuttu júmbó-þotunni í áætlunarflugi sem er betur þekkt sem Boeing 747SP en sl. sunnudag flaug Iran Air síðasta flugið með þessari farþegaþotu sem kynnt var til sögunnar fyrir 37 árum síðan.
Síðasta Boeing 747SP vél Iran Air, EP-IAC, fór í loftið í sína síðustu flugferð frá flugvellinum í Teheran þann 23. nóvember og flaug vélin kveðjuflug yfir Alborz-fjöllinn og Kaspíahaf áður en hún snéri aftur við til Teheran.
Þótt að Iran Air hafi verið síðasta flugfélagið til að nota vélina í áætlunarflugi þá hafa ríkisstjórnir nokkura landa
enn yfir að ráða Boeing 747SP auk einkaaðila.
Meðal þeirra er Saudi Arabian Royal Flight en sú vél er í litum Saudi Arabian Airlines, spilavítafyrirtækið Las Vegas Sands, Pratt & Whitney í Kanada, Bahrain Royal Flight, CC2B, Ernest Angley Ministries, Oman Royal Flight og Qatar Airways Amiri Flight.
Boeing 747SP var kynnt til sögunnar árið 1976 og sló vélin nokkur heimsmet á sínum tíma.
Til stóð að framleiða 200 eintök af vélinni en Boeing náði aðeins að smíða 45 vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.