flugfréttir

Myndband: Farþegar ýta Tupolev Tu-134 farþegaþotu í 52 stiga frosti

- Bremsur í hjólastelli frusu í kuldanum - „Allir út að ýta“

27. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:36

Vélin var af gerðinni Tupolev Tu-134 og var hún frosin í bremsu á flugvellinum í Igarka

Íslendingar eru vanir því á veturna að fara út og ýta þegar bíllinn festist í snjónum en að ýta heilli farþegaþotu, sem vegur 27 tonn, er aðeins meira mál og væri það alveg nýtt fyrir okkur.

Rússar eru þó ýmsu vanir en svo miklar frosthörkur hafa verið í Síberíu að bremsur á Tupolev Tu-134 vél UTair frusu fastar fyrir brottför og var því lítið annað hægt að gera en að láta alla farþegana fara út og ýta vélinni.

Vélin var í þann mund að fara í loftið frá flugvellinum í bænum Igarka en vélin færðist ekki úr stað þar bremsurnar höfðu frosið fastar eftir að hitastigið hafði fallið niður í mínus - 51°C gráður.

Sumir farþegar biðu inni og tóku vídeó út um gluggann

Dráttarbíll vallarins gat ekki hjálpað til við að ýta vélinni en 70 manns voru um borð og fór dágóður hópur hraustra manna út að ýta en það er þó ekki löglegt vegna hættu á að skemmdir komi á klæðningu vélarinnar sem gætu stofnað flugöryggi í hættu.

Bærinn Igarka er staðsettur um 160 kílómetra norðan við heimskautsbaug og getur frostið þar oft farið niður í - 30 gráður en 50 stiga frost er þó óvenju mikill kuldi á þeim slóðum.

Vélin komst í loftið eftir að farþegarnir höfðu ýtt vélinni og lenti hún heil á höldnu í bænum Krasnoyarsk.

Hér að neðan má sjá kostulegt myndband sem tekið var upp er farþegarnir ýttu vélinni.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga