flugfréttir
Norwegian íhugar flug frá Evrópu til Kína og Karíbahafsins með Boeing 737 MAX
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 8 í litum Norwegian Air Shuttle
Norwegian Air Shuttle sér mörg tækifæri í boði með tilkomu þeirra Boeing 737 MAX véla sem félagið á von á að fá en lágfargjaldafélagið norska hefur augastað á flugi frá Evrópu til Kína og Karíbahafsins.
Framkvæmdarstjóri Norwegian, Bjørn Kjos, hefur ítrekað áform félagsins um að nota Boeing 737 MAX vélarnar
í flugi til áfangastaða sem félagið hefur ekki flogið áður til.
"Við munum geta flogið Boeing 737 MAX vélunum til vesturhluta Kína og það eru margar stórborgir sem við getum
flogið til með vélunum utan Evrópu sem við erum ekki að fljúga til í dag", segir Kjos.
Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian Air Shuttle sér mörg
tækifæri með Boeing 737 MAX 8 vélunum
Nýir áfangastaðir fyrir utan Evrópu verða þeir fyrstu sem félagið mun einblína á og skoða þegar afhendingar á Boeing 737 MAX hefjast en Norwegian á von á 100 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 8 en afhendingar á þeim hefjast árið 2017 og þá hefur félagið kauprétt á 100 vélum til viðbótar af þeirri gerð.
Norwegian notar núna Dreamliner-vélar í flugi til fjarlægra áfangastaða en félagið er einnig að skoða möguleika á að fljúga
þeim til Hawaii, Japans og til Suður-Afríku.
"Það eru endalausir möguleikar þegar kemur að uppbyggingu á leiðarkerfi og t.d. væri hentugra að tengja
borgir á borð við Boston við Stokkhólm og Edinborg með minni farþegaþotum með einum gangi", segir Kjos.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.