flugfréttir
Fyrsta vélmennið til að fljúga sem farþegi í áætlunarflugi
- Vélmennið Aþena náði athygli farþega á LAX í gær

Alexander Herzog fylgir Aþenu um borð í vél Lufthansa á LAX í gær
Í fyrsta sinn í sögu flugsins í gær (að vitað sé) flaug vélmenni sem farþegi í áætlunarflugi en vélmennið þurfti, eins og aðrir farþegar, að greiða fyrir flugmiðann.
Vélmennið Aþena fékk mikla athygli í gær er hún fór gegnum Tom Bradley flugstöðina á flugvellinum í Los Angeles
ásamt eiganda sínum áður en þau fóru um borð í vél Lufthansa til Frankfurt.

Af Twitter-vefsíðu LAX-flugvallarins
Aþena var smíðuð af fyrirtækinu Sarcos í Salt Lake City en Max Planck-stofnunin í Þýskalandi hefur keypt vélmennið
þar sem það verður notuð við rannsóknarstörf í Japan sem þykja of hættuleg mönnum á borð við að þrífa
upp kjarnorkuúrgang í borginni Fukushima.
Læknaneminn Alexander Herzog, ýtti Aþenu í hjólastól gegnum flugstöðina í gegnum hóp blaðamanna, ljósmyndara og fólks sem flykktust að með myndavélasíma en Aþena fékk miða á almennu farrými þar sem hún var fest í sætið sitt en í augnablikinu getur vélmennið ekki hreyft sig þar sem enn er verið að þróa forritið sem mun sjá um hreyfingar.
Mögulega hefði verið hægt að senda Aþenu með skipi eða í flugfrakt en vísindamenn vildu sjá hvernig farþegar
myndu bregðast við að sjá vélmenni sitja í sæti um borð í flugvél.


18. maí 2022
|
London City flugvöllurinn stefnir á að verða fyrsti flugvöllurinn í heimi til að verða að öllu kolefnalaus og það fyrir árið 2030.

5. apríl 2022
|
Kínverska flugfélagið Hainan Airlines ætlar að selja tvær Airbus A350-900 breiðþotur en báðar þoturnar hafa verið mjög lítið notaðar og þeim aðeins flogið átta sinnum í áætlunarflugi frá því þær voru

27. apríl 2022
|
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur ákveðið að greiða vinnutíma hjá flugfreyjum og flugþjónum fyrir þann tíma þegar farþegar eru að ganga um borð og koma sér fyrir en hingað til hefur greidd

28. júní 2022
|
JetBlue Airways hefur komið með enn annað tilboðið í Spirit Airlines og kemur tilboðið á síðustu stundu áður en hluthafar Spirit Airlines kjósa um fyrirhugaðan samruna félagsins við Frontier Airlines

22. júní 2022
|
Ráðið hefur verið í stöðu skólastjóra og stöðu yfirkennara bóklegrar kennslu hjá Flugakademíu Íslands. Óskar Pétur Sævarsson var ráðinn skólastjóri og Davíð Brár Unnarson yfirkennari bóklegrar kennslu

21. júní 2022
|
Breska lágfargjaldafélagið easyJet segir að til standi að leggja inn pöntun til Airbus í 56 þotur af gerðinni Airbus A320neo og þá sé einnig áætlað að breyta pöntunum í átján A320neo þotur yfir í A3

20. júní 2022
|
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa gefið út endurgerða fjárhagsspá fyrir flugfélögin þar sem talið er að afkoma flugfélaganna verði betri eftir heimsfaraldurinn en gert var ráð fyrir í upphafi

16. júní 2022
|
Suður-kóreska flugfélagið Asiana Airlines hefur ákveðið að dusta rykið af risaþotunum Airbus A380 þar sem að eftirspurn eftir flugi hefur tekið við sér að nýju eftir heimsfaraldurinn.

14. júní 2022
|
Farþegaþota af gerðinni Airbus A320 frá easyJet lýsti yfir neyðarástandi sl. sunnudag (þann 12. júní) eftir að annar flugmaður vélarinnar brá sér á salernið og kom ekki til baka í stjórnklefann fyrir

14. júní 2022
|
Ungvesrka lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur þurft að svara fyrir ummæli framkvæmdarstjóra flugfélagsins og segir félagið í yfirlýsingu sinni að það sé langt frá því að Wizz Air setji flugöryggi í an

10. júní 2022
|
Lendingarkeppni fór fram á flugvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ í gær en keppnin hófst klukkan 19:30 og var hluti af hinu vikulega fimmtudagskaffi sem fram fer á Tungubökkum á sumrin þar sem flugm