flugfréttir
EasyJet og Norwegian hættu við lendingu í KEF vegna óveðurs
- Snéru við og flugu til Skotlands
Tvær farþegaþotur, frá easyJet og Norwegian, þurftu frá að hverfa í hádeginu vegna óveðurs en báðar vélarnar hættu við lendingu í aðflugi að braut 11 á Keflavíkurflugvelli en flugmenn vélanna beggja ákváðu að lenda ekki og fóru báðar vélarnar af landi brott til Skotlands.
EasyJet-vélin, sem var af gerðinni Airbus A320 og var að koma frá London Luton, átti að lenda í hádeginu en þá var veðrið virkilega farið að versna og skollin á kafaldsbylur.
Vélin tók einn hring áður en önnur tilraun varð gerð en hætt var við hana og hækkaði vélin aftur flugi og fór af landi brott
og lenti í Inverness á Skotlandi þess í stað.
Þá var Boeing 737-800 frá Norwegian Air Shuttle komin að aðflugslínunni inn á 11 klukkan 12:30 en sú vél tók tvo hringi áður en flugmenn vélarinnar ákváð líka að hætta við lendingu og fór vélin einnig til Inverness á Skotlandi.
EasyJet-vélin á Flightradar24 heldur til Skotlands
Flugleið Norwegian-vélarinnar á Flightradar24 klukkan 12:30
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.