flugfréttir
Danish Air Transport kaupir þriðju notuðu A320 vélina
Airbus A320 vél DAT (Danish Air Transport)
Danska flugfélagið DAT (Danish Air Transport) hefur keypt þriðju Airbus A320 vélina en um er að ræða notaða vél og leitar félagið af tveimur A320 vélum til viðbótar.
10 mánuðir eru síðan að DAT keypti fyrstu A320 vélina en þriðja vélin er 22 ára gömul og var hún keypt í Kaliforníu
en áður var hún í flota Sky Airlines í Chile.
DAT ætlar sér að vera með fimm A320 vélar í gangi næsta sumar en þær þrjár vélar sem félagið hefur núna eru
af gerðinni A320-231 og koma þær með V2501 hreyflum frá IAE (International Aero Engines) sem njóta ekki mikilla vinsælda
þar sem það þykir dýrt að viðhalda þeim.
Þar af leiðandi seljast hreyflarnir á 1/5 af því verði sem hefðbundnir notaðir CFM hreyflar seljast á og notar DAT því mismuninn í að kaupa varahluti og varahreyfla þess í stað.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.