flugfréttir

Keilir býður upp á að hefja nám í flugvirkjun á vorönn

- Enn eru nokkur laus pláss í flugvirkjanám Keilis

18. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:41

Flugvirkjanám Keilis er í samstarfi við Air Service Training ltd. (AST)

Vegna mikils áhuga mun Flugakademía Keilis bjóða nemendum upp á að hefja flugvirkjanám á vorönn, en hingað til hefur upphaf námsins verið á haustönn. Enn eru nokkur pláss laus í námið sem hefst í janúar 2015 og er áhugasömum bent á að hafa samband við Flugakademíu Keilis sem fyrst.

Fyrst var boðið upp á flugvirkjanámið haustið 2013 og bárust vel yfir hundrað umsóknir um þau 28 pláss sem voru í boði. Það er því ljóst að mikill áhugi er meðal Íslendinga að sækja flugvirkjanám, enda er mikill skortur á flugvirkjum í heiminum.

Keilir og AST vilja benda á að nám og starf í flugvirkjun hentar jafnt konum sem körlum og því hvetjum við konur sérstaklega til að skoða þennan möguleika í framtíðinni.

Flugvirkjanám Keilis er í samstarfi við Air Service Training ltd. (AST) sem hefur sett upp útibú frá skóla sínum í Perth í Skotlandi hjá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ. Í skólanum fer fram réttindanám flugvirkja og er um að ræða fimm anna samþykkt nám fyrir flugvirkja „Approved IR Part 66 Category B“ sem er bóklegt og verklegt iðnnám flugvirkja.

Námið tekur mið af námsskrá sem gefin er út af EASA samkvæmt samevrópski útgáfu skírteina og sér AST um framkvæmd og ber faglega ábyrgð á gæðum námsins. Þeir sem ljúka flugvirkjanámi hjá AST öðlast öll þau réttindi sem EASA 145 viðhaldsfyrirtæki krefjast við ráðningu flugvirkja fyrir nútíma flugvélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga