flugfréttir
Ókeypis að fljúga með SAS árið 2018
Það skildi þó ekki enda með því að samkeppnin í fluginu verði það mikil að það verði ókeypis að fljúga? - Þótt það hljómi undarlega þá hefur skandinavíska flugfélagið SAS gefið það til kynna.
Eivind Roald, markaðsstjóri hjá SAS, segir að félagið gæti bundið enda á samkeppnina við Norwegian Air Shuttle árið 2018
með því að láta þá farþega sem vilja fljúga frítt og aðeins greiða skatta og aukagjöld en á móti myndi yrði afgangurinn fjármagnaður með auglýsingum og sölu
á lausavarningi.
Roald segir að í dag hlusti fólk á ókeypis tónlist á vefsíðunni Spotify en samþykki á móti auglýsingar inn á milli
en á svipaðan hátt gætu farþegar SAS fengið að fljúga frítt ef reksturinn myndi afla tekna með öðrum hætti
auk vildarkerfisins EuroBonus.
Eivind Roald segir að farþegar séu ekki bara að horfa í aurinn
því það skipti þá líka máli að flugið sé á réttum tíma
Horfa á auglýsingar í stað þess að fljúga ókeypis
SAS íhugar að láta farþega samþykkja að horfa á auglýsingar í afþreyingarkerfinu um borð í vélunum
en með þeim hætti gætu þeir unnið sér inn vildarpunkta í EuroBonus og enn fleiri punkta myndu þeir samþykkja
að prófa vörur á borð við reynsluakstur á nýjum bíl sem myndi skila auglýsingatekjum til flugfélagsins frá auglýsanda en þeir farþegar sem vilja sleppa því að horfa á auglýsingar myndu á móti þurfa að greiða fullt fargjald.
Bjørn Kjos ætlar hinsvegar ekki að bjóða upp á fríar flugferðir í stað auglýsinga og tekur Lasse Sandaker-Nielsen, talsmaður Norwegian, í sama streng að farþegar vilji frekar slappa af og njóta þess að horfa á bíómynd um borð í stað þess
að horfa á auglýsingar og svara spurningum.
SAS ætlar hinsvegar að vera meira en bara flugfélag í framtíðinni og er stefnan á að bjóða upp á pakka þar sem farþegar er t.a.m.
sóttir heim að dyrum og þeir keyrðir út á flugvöll og þeim ekið upp á hótel á áfangastað og greiða með því bara
eitt gjald í stað þess að vera endalaust með veskið á lofti þegar kemur að því að greiða aukagjöld og samgöngur
til og frá flugvelli.
Íbúar Norðurlandanna eru 26 milljónir en einn af hverjum tíu Skandinavíubúum fljúga allt að fimm sinnum á ári
eða oftar og sér félagið fram á að bara það muni gefa félaginu enn meiri byr á næstu árum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.