flugfréttir

Flugstjóri í 3 ára fangelsi í Kína í kjölfar flugslyss árið 2010

19. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:00

Hermenn í Kína gæta flaks vélarinnar árið 2010

Dómstóll í Kína hefur dæmt flugstjóra í 3 ára fangelsi í kjölfar flugslyss sem átti sér stað árið 2010 og kostaði 44 manns lífið.

Flug 8387, á vegum Henan Airlines, var í aðflugi að flugvellinum í Yichun í Heilongjiang-héraði eftir flug frá Harbin þann 24. ágúst árið 2010, þegar vélin, sem var af gerðinni Embraer E-190, fórst í mjög slæmu skyggni.

Um borð var 91 farþegi og fimm manna áhöfn en þetta var fyrsta flugslysið þar sem Embraer E-190 vélin átti í hlut og það fyrsta mannskæða með þeirri flugvélategund.

Niðurstöður frá rannsóknarnefnd flugslysa var sú að flugmennirnir hefðu ekki farið eftir settum verklagsreglum varðandi lendingu í slæmu skyggni og hafði flugstjórinn því brotið lög með því að reyna að lenda vélinni sem fór út af brautinni.

Ennig segir í dómi að flugstjórinn hafi ekki fylgt eftir reglugerðum varðandi rýmingu og þar að auki yfirgaf hann flakið á slysstað.

Slysið var það mannskæðasta í Kína frá því árið 2004 er farþegaþota frá China Eastern Airlines fórst ofan í stöðuvatn í norðurhluta Kína en þá létust 53 um borð og tveir á jörðu niðri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga