flugfréttir
Icelandair-vél varð fyrir eldingu í aðflugi að Billund
Vélin sem varð fyrir eldingunni var "Magni", TF-FIC
Boeing 757-200 vél frá Icelandair varð fyrir eldingu í morgun er vélin var í aðflugi að flugvellinum í Billund í Danmörku.
Vélin lenti heil á höldnu í Billund en einhver seinkun hefur orðið á fluginu til baka til Keflavíkur og er verið að skoða
vélina til að meta hvort hún sé flughæf fyrir flugið til baka til Íslands en vélin átti að fara í loftið klukkan 12:40
að íslenskum tíma.
Farþegaþotur hafa þó fullkomin eldingavara sem leiðir eldinguna út skrokkinn en ávallt þarf að fara fram skoðun
til að ganga úr skugga um ástand vélarinnar áður en hún fer aftur í loftið.
Uppfært kl. 15:53
Verið er að undirbúa aðra vél sem mun fara í loftið frá Keflavík til að sækja farþegana sem eiga pantað flug frá Billund til Íslands.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.