flugfréttir
Maðurinn sem át heila flugvél
- Það tók Michel tvö ár að borða Cessnu 150
Það tók Michel Lotito 2 ár að borða flugvélina á sínum tíma
Næringarfræðingar segja að það er gott að borða fjölbreytta fæðu en að hafa flugvél í kvöldmatinn er eitthvað sem hljómar mjög svo undarlega.
Það er ótrúlegt að hugsa til þess að til hafi verið maður sem át heila flugvél en Frakkinn Michel Lotito lagði heila Cessnu sér
til munns og sporðrenndi henni eins og 15 tommu pizzu - en það var þó ekki gert á einu kvöldi.
Michel, sem einnig var kallaður "Monsieur Mangetout" (eða "Herra étur hvað sem er"), hafði frá árunum 1959 til 1997
étið heil 9 tonn af málmi og en meða þess sem hann borðai voru 15 innkaupakerrur, 18 reiðhjól, sjö sjónvörp, tvö rúm, eina líkkistu, 400 metra langa stálkeðju og eina flugvél af gerðinni Cessna 150.
Gömul mynd þar sem Michel bregður á leik og bítur í skrúfuna
á Cessnu-vél fyrir ljósmyndara
Það tók Michel 2 ár að borða Cessnuna en hann byrjaði á henni árið 1978 og tók seinasta bitann árið 1980 en það
kom honum í Heimsmetabók Guinness.
Þjáðist af heilkenninu Pica
Michel þjáðist af sjúkdómi er kallast Pica sem lýsir sér sem löngun í að éta efni á borð við mold, málma, gler og gúmmí en
líkami hans þoldi slíka "næringu" á meðan venjulegt fólk hefði veikst af slíkri inntöku.
Michel fæddist í franska bænum Grenoble í Frakklandi árið 1950 en 16 ára kom hann fram þar sem hann át málma
að viðstöddum sýningargestum. Hann braut málma niður í smáar einingar og drakk sérstaka olíu með til að auðvelda
maganum að melta "fæðuna" en einnig drakk hann mikið magn af vatni með en þess má geta að Michel varð fárveikur
ef hann át egg eða banana.
Hann var aðeins 9 ára þegar hann komst að því að hann gat borðað málma, gler og plast án þess að verða meint af en það
fyrsta sem hann át voru íhlutir úr sjónvarpi fjölskyldunnar.
Michek át málma á hverjum degi þar til hann lést en veiktist
ef hann át banana
Át 1 kíló af Cessnunni á dag
Hvern einasta dag át hann um 1 kíló af flugvélinni en Cessna 150 vegur tóm um 509 kíló en eftir tvö ár
var ekkert eftir af vélinni.
Michel lést árið 2007 er hann var 57 ára að aldri en flestum myndi detta í hug að hann hafi látist af næringarskorti
eða óhollu matarræði svo var þó ekki.
Í 40 ára hafði Michel étið 1 kíló af málmi á dag en enginn hefur slegið heimsmet hans yfir "undarlegasta mataræðið"
í Heimsmetabókinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.