flugfréttir

Airbus afhendir fyrstu A350 vélina

- Qatar Airways tekur við nýstárlegustu farþegaþotu heims

22. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:33

Farbrice Bregier, forstjóri Airbus og Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways í morgun við móttökuathöfnina

Airbus braut blað í morgun í sögu flugsins þegar nýjasta farþegaþota heims var afhent til Qatar Airways sem varð fyrsta flugfélagið í heimi til að taka við Airbus A350 vélinni.

Airbus A350 er ein hagkvæmasta og sparneytnasta farþegaþota sem völ er á ásamt Dreamliner-vélinni sem hafa keppst saman um pantanir frá viðskiptavinum sem hafa valið þessar vélar til að leysa af hólmi þær farþegaþotur sem eru orðnar gamlar í dag og fara að heyra sögunni til.

Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, tók við vélinni í morgun fyrir hönd flugfélagsins og sagði að Qatar Airways sé búið að bíða eftir vélinni með eftirvæntingu sem er útbúin allri þeirri nýstárlegustu tækni sem völ er á í flugvélasmíði.

Þá er þetta einnig stór dagur fyrir Rolls-Royce sem framleiddi Trent XWB hreyflanna fyrir vélina en John Rishton, framkvæmdarstjóri Rolls-Royce, sagði að hreyflarnir fyrir nýju A350 vélina væri afrakstur margra ára vinnu og upphafið af nýrri framleiðslu fyrir verksmiðjurnar.

Fabrice Bregier, forstjóri Airbus, sagði að framleiðandinn væri á áætlun hvað varðar A350 vélina sem er ætlað að keppa bæði við Dreamliner-vélina og einnig Boeing 777X.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga