flugfréttir
Air China pantar 60 Boeing 737 vélar
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX vélum í litum Air China
Air China hefur gert samkomulag við Boeing um kaup á sextíu farþegaþotum af gerðinni Boeing 737 að andvirði 5.9 milljarða bandaríkjadala sem samsvarar 743 milljarða króna.
Air China er að panta bæði Boeing 737 Next Generation vélar og Boeing 737 MAX og verða vélarnar afhentar
frá 2016 til ársins 2020 en flugfélagið kínverska hefur átt góð viðskipti við Boeing í marga áratugi en 156 vélar
af þeim 327 vélum, sem eru í flota Air China, eru frá Boeing.
Boeing spáði því í september að þörf sé á 6.020 nýjum farþegaþotum í Kína á næstu 20 árum sem er 8% aukning
til viðbótar við síðustu spár sem gefnar voru út árið 2012.
Air China mun fjármagna kaupin með blöndu af reiðufé af hagnaði félagsins og af bankaláni sem félagið mun taka en Boeing mun bæta pöntuninni við listann yfir bókaðar pantanir um leið og félagið hefur staðfest kaupin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.