flugfréttir

Air Asia: Skerandi viðvörunarhljóð yfirgnæfa raddir flugmannanna

22. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 19:11

Hluti af klæðningu vélarinnar í farþegarýminu

Heyra má mörg viðvörunarkerfi fara í gang á hljópupptöku úr hljóðrita Air Asia vélarinnar, skömmu áður en hún fórst yfir Jövuhafi í Indónesíu þann 28. desember fyrir áramót.

Flugslysasérfræðingar, sem hafa unnið að því að ná gögnum úr svörtu kössum vélarinnar, segja að mörg viðvörunarhljóð má heyra á upptökunni úr hljóðritanum á meðan flugmennirnir reyndu allt sem þeir gátu til að rétta vélina við frá því að ofrísa en raddir þeirra hurfu að lokum í hávaðann frá viðvörunarboðum.

Meðal annars má heyra viðvörunarmerki um að vélin var að ofrísa - "Viðvörunarboðin heyrast með miklum hávaða á meðan þeir voru að reyna rétta vélina af en erfitt er að greina hvað flugmennirnir eru að segja vegna þessa", segir einn flugslysasérfræðingur en þá sýna gögn úr flugritanum einnig að viðvaranir um ofris fóru í gang.

Upptakan er um 2 klukkustunda löng og inniheldur því einnig samtal þeirra flugmanna sem flugu vélinni flugið á undan áður en hljóðritinn hóf að taka upp flugið örlagaríka, QZ8501.

Sjö tölvur í tveimur herbergjum notaðar til að ná gögnum úr svörtu kössunum

Sjö tölvur í tveimur herbergjum eru notaðar til að hala niður gögnunum úr svörtu kössunum en í einu herberginu er verið að ná gögnum úr flugritanum og í hinu er verið að hala niður upplýsingum úr hljóðritanum en einnig er verið að skoða gögn um þær 72 flugferðir sem vélin flaug áður en hún fórst.

Indónesískir rannsóknaraðilar munu bera gögn varðandi rannsóknina undir Alþjóðaflugmálastofnunina, ICAO, í næstu viku en samkvæmt lögum er skylda að afhenta niðurstöður úr frumrannsókn til stofnunarinnar innan 30 daga frá slysi.

Tatang Kurniadi, yfirmaður rannsóknarinnar, segir að niðurstöður úr frumrannsókn verða ekki gerðar opinberar þá en möguleiki er að einhverjar upplýsingar verði birtar þann 28. janúar en von er á lokaskýrslunni innan eins árs.

Fram hefur komið að hækkunarhraði vélarinnar undir það síðasta hafi verið 6 þúsund fet á mínútu en undir venjulegum kringumstæðum hækkar farþegaþota flughæð sína um 1.000 til 2.000 fet á mínútu.

Vélin var því að hækka flugið allt að sex sinnum hraðar en venjulegt er og því hafi hún klifrað það bratt að vélin hrapaði aftur fyrir sig ofan í hafið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga