flugfréttir

Myndband: Bjargað um borð í skemmtiferðaskip eftir að flugvélin sveif í fallhlíf ofan í Kyrrahafið

- Tvær litlar flugvélar fóru í sjóinn í gær nálægt Hawaii-eyjum

26. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 22:06

Cirrus-vélin var á leið frá Kaliforníu til Hawaii þegar flugmaðurinn sá að hann var að verða eldsneytislaus

Bandaríska standgæslan náði eftirfarandi myndbandi í gær er lítil einshreyfils flugvél sveif í fallhlíf ofan í Kyrrahafið eftir að vélin varð eldsneytislaus.

Vélin, sem var af gerðinni Cirrus SR-22, kemur með fallhlíf og hafa þær nokkrum sinnum bjargað mannslífum er neyðartilvik kemur upp eða bilun verður í mótor.

Flugmaðurinn fór í loftið frá Kaliforníu og var að fljúga alla leið til Hawaii en hann var í 400 kílómetra fjarlægð frá eyjunum þegar hann sá fram á að hann myndi ekki ná til Maui með eldsneyti upp á 3 klukkustundir sem dugði ekki.

Flugmaðurinn var einn um borð og var honum bjargað um borð í skemmtiferðaskipið Veendam sem tók stefnu sína í átt að vélinni eftir að bandaríska strandgæslan lét skemmtiferðaskipið vita að svaðilför vélarinnar og var björgunaraðgerðum stjórnað frá samhæfinarmiðstöð á meginlandi Bandaríkjanna.

Flugmanninum var sagt að fljúga í átt að skemmtilferðaskipinu og virkjaði hann fallhlífina kl. 16:45 að staðartíma og sveif vélin því næst í sjóinn og komst flugmaðurinn um borð í björgunarbát áður en skemmtiferðaskipið tók hann upp í.

Myndband:



Önnur vél eldsneytislaus tveimur tímum síðar á svipuðum slóðum

Ekki liðu tvær klukkustundir þar til önnur vél, af gerðinni Cessna, sendi út neyðarkall nálægt Hawaii-eyjum þar sem vélin var einnig tæp á eldsneyti en um borð í henni voru þrír fullorðnir og eitt barn.

Sú vél var á leið frá Kauai til Oahu en hvarf af ratsjá á leiðinni en vélin endaði einnig í sjónum en þó ekki með fallhlíf.

Bandaríska strandgæslan náði að bjarga öllum um borð og var fólkið flutt til Barbers Point herstöðvarinnar nálægt Honolulu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga