flugfréttir
Icelandair mun bæta við þremur vélum í stað tveggja - 24 vélar í sumar
- Icelandair eykur framboð í sumar og haust
Boeing 757-200 vél Icelandair, Katla (TF-FIV)
Icelandair hefur bætt við flugframboð félagsins á þessu ári frá því sem áður hefur verið kynnt. Gera má ráð fyrir því að farþegar Icelandair verði um 3 milljónir á árinu 2015, en áður hafði verið gert ráð fyrir 2,9 milljónum farþega.
Næsta sumar hefur verið bætt við sex vikulegum flugum og þannig aukið framboð á áfangastaðina Seattle, Vancouver, New York Newark, London Gatwick, París, Amsterdam og Zurich.
Næsta haust, þ.e. í október, nóvember og desember, er tíðni ennfremur aukin á ýmsa áfangastaði, en sérstök athygli er vakin á því að flug til Minneapolis er framlengt um þrjá mánuði.
Gert er ráð fyrir að flogið verði til Minneapolis þar til um miðjan janúar 2016 en áður hafði verið gert ráð fyrir vetrarhléi á fluginu frá miðjum október.
Í sumar verða 24 Boeing 757 farþegaþotur nýttar fyrir áætlunarflug félagsins, einni fleiri en áður hefur verið kynnt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.