flugfréttir
Indónesía ætlar að kynna nýjar öryggiskröfur fyrir öll flugfélög í landinu
- Munu gera úttekt á indónesískum flugfélögum á þriggja mánaða fresti
Flugmálayfirvöld í Indónesíu ætla að kynna nýjar öryggiskröfur fyrir hvert einasta flugfélag í landinu og uppræta þá vankanta sem hafa verið viðloðandi öryggismál í fluginu þar í landi.
Ignasius Jonan, samgönguráðherra Indónesíu, segir að úttekt á öryggismálum meðal indónesískra flugfélaga mun fara
fram á þriggja mánaða fresti og beitt verður refsingum og sektum fyrir þau flugfélög sem uppfylli ekki þær kröfur
sem eru gerðar til þeirra.
Jonan segir að í næsta mánuði verði birt nánari lýsing á ferlinu og með hvaða hætti því verði framfylgt en til stendur
að láta öll flugfélög uppfylla hámarkskröfur í öryggismálum í flugi.
Enn og aftur hafa flugöryggismál í Indónesíu verið í brennidepli í kjölfar Air Asia flugslyssins en m.a. hefur forseti landsins
farið fram á neyðarúrbætur í þeim málum.
Sérfræðingar í fluginu segja að sökum þessi hversu mikil sprengja hefur orðið í fluginu í Indónesíu hefur öryggið setið á hakanum og ekki hefur tekist að hafa eftirlit með þeirri þróun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.