flugfréttir
Transavia kynnir nýtt útlit og merki
Fyrsta Boeing 737 vél Transavia í nýju litunum
Hollenska lágfargjaldafélagið Transavia hefur kynnt nýtt útlit félagsins og er þegar búið að mála eina af Boeing 737 vélum félagsins í nýjum litum.
Nýtt merki hefur verið hannað með hvítu T á stéli vélanna í ljósgrænum hring og nafn félagsins hefur verið stækkað
en blái og dekkri græni liturinn hafa verið látnir víkja.
Við inngang vélarinnar eru farþegar boðnir velkomnir um borð á öllum tungumálum í þeim löndum sem félagið
flýgur til og undir búknum má finna lógó félagsins auk tveggja merkja sem tákna viðskiptaferðalög og sólarlandaferðir.
Það var hollenska auglýsingastofan Studio Dumbar sem sá um að hanna nýja útlitið fyrir Transavia og voru gerðar
markaðsrannsóknir áður en hönnunin var ákveðin sem þykir henta ímynd félagsins.
Móðurfyrirtækið, Air France-KLM, ætlar sér að herða samkeppnina við easyJet og Ryanair og er áætlað að flugfloti
Transavia muni stækka upp í 40 vélar fyrir árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.