flugfréttir
Manaus í Brasilíu hundraðasti áfangastaður Cargolux með 747-8F
Boeing 747-8F vél Cargolux við komuna til Manaus sl. mánudag
Brasilíska borgin Manaus varð hundraðasti áfangastaður Cargolux með Boeing 747-8F vélinni sem flaug fyrsta flugið þangað með þeirri tegund þann 25. janúar sem flug CV7606 frá Luxembourg en um borð voru varahlutir og búnaður fyrir fjarskiptatæki.
Cargolux flaug fyrst til Manaus árið 2012 en félagið flýgur einnig til Campinas, Curitiba og til Petrolina í Brasilíu.
Cargolux hefur nú fengið ellefu Boeing 747-8F fraktvélar afhentar og er von á þremur til viðbótar en alls hefur félagið
22 júmbó-fraktvélar í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.