flugfréttir
Icelandair eina flugfélagið sem flaug til JFK í snjóbyl - Of gott til að vera satt
- Skemmtileg skjámynd af komuflug á JFK hefur farið víða
Á skjáskotinu má sjá hvar búið var að aflýsa 23 flugferðum vegna snjóstormsins - nema Icelandair sem var á áætlun
Meðfylgjandi skjámynd af upplýsingum af komuflugi um John F. Kennedy flugvöllinn í New York í gær hefur vakið mikla athygli á Netinu þar sem sjá má hvar öll flugfélög á viðkomandi lista hafa aflýst flugi vegna snjóstormsins - nema Icelandair sem var á áætlun.
Á fésbókarsíðu einni er búið að deila skjámyndinni 700 sinnum þar sem miklar umræður hafa skapast
um hversu skemmtilegt sé að sjá hvar Icelandair hafi verið eina flugfélagið sem flaug til New York meðan hin
flugfélögin aflýstu sem gæti svo sannarlega endurspeglað að Íslendingar séu vanir hvaða veðri sem er þegar
kemur að snjókomu.
Þótt myndin sé skemmtileg þá er því miður ekki svo að Icelandair hafi verið eina félagið þar sem skjáskotið sýnir
aðeins 8 mínútna tímabil í gær af brottförum frá JFK sem er bara örlítið brot af traffíkinnu.
"Mörg flugfélög sem flugu líka"
"Þetta er skemmtileg mynd en það er ekkert meira á bakvið það", segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair í viðtali við Alltumflug.is sem tekur einnig fram að mörg flugfélög
hafi verið að fljúga á þessu tímabili og nefnir hann að þjónustuaðili á JFK hafi sagt að flugfélög á borð
við British Airways og Cathay Pacific hafi flogið til JFK þótt að fullt af flugi hafi verið aflýst.
"Þegar svona verður er yfirvofandi á svæði þar sem eru fimm flugvellir, á New York-Boston svæðinu með alla þessa flugumferð, þá verða flugfélögin að aflýsa. Ef þetta er ekki gert skipulega, hvaða flug eiga að stoppa, hvar á að hafa vélarnar, hvar á að hafa áhafnirnar og hvaða flugferðum á að fórna, þá getur skapast algjört öngþveiti ", segir Guðjón.
"Við höfum lent í því í Keflavík líka að það er hægt að lenda og taka í loft en Reykjanesbrautin getur verið mjög þungfær
og erfitt að koma fólki frá flugbrautunum og inn í flugstöð", segir Guðjón sem nefnir að flugfélögin þurfi að gera miklar ráðstafanir þar sem öll starfsemin á bakvið hvert flug getur raskast og sé því vissara að aflýsa tímanlega frekar en að sjá til hvernig veðrið verður.
"Við notum alveg sama öryggisstaðla og allir aðrir. Það fer viss formúla í gang þannig þetta snýst ekkert um að þora
að lenda í vondu verði. Það eru flugfélög líka í norðurhlutanum og í Kanada sem eru von miklum kuldum og öllu veðri"
Þótt myndin svo sannarlega skemmtileg þá er sannleikurinn því miður sá að aðeins var um að ræða brot úr klukkutíma á JFK þótt við Íslendingar séu vön hvaða veðri sem er.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.