flugfréttir

Delta lengir ferðatímabilið frá Keflavík til New York næsta sumar

- Ferðir hefjast mánuði fyrr og áfram flogið daglega

29. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 20:13

Boeing 757-200 vél Delta Air Lines á Keflavíkurflugvelli

Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines mun fljúga daglega milli Íslands og New York næsta sumar, líkt og síðastliðið sumar. Delta hefur jafnframt lengt ferðatímabilið um rúman mánuð og byrjar að fljúga 2. maí 2015.

Þetta er fimmta sumarið sem Delta Air Lines mun fljúga frá Kennedy-flugvelli til Keflavíkurflugvallar og verður flogið með Boeing 757 vélum eins og í fyrri skipti og er flogið í samvinnu við Air France-KLM.

”Tölur Ferðamálastofu sýna að ferðamönnum frá Bandaríkjunum til Íslands fjölgaði um nærri 30% á síðasta ári miðað við 2013. Við erum stolt af því að taka þátt í þessum vexti og sömuleiðis að geta boðið Íslendingum valkost á leið þeirra til Bandaríkjanna. Frá Kennedyflugvelli bjóðum við jafnframt tengiflug til 60 áfangastaða í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku og Karabíska hafinu.” segir Perry Cantarutti, forstjóri Delta í Evrópu, Austurlöndum nær og Afríku.

Delta Air Lines mun áfram fljúga daglega til Keflavíkur frá New York

Um borð í farkosti Delta er boðið upp á allt að 24 sæti í viðskiptafarrými með úrval af máltíðum. Í Economy Comfort farrýminu er aukið bil á milli sæta og hægt að halla sætisbökum 50% meira aftur en á almennu farrými. Máltíðir eru innifaldar á öllum farrýmum í áætlunarflugi Delta og minnst ein 23 kg ferðataska og handfarangur.

Afþreyingarkerfi stendur öllum farþegum til boða á flugleiðinni

Miklar endurbætur hafa átt sér stað í flugstöð 4 á Kennedyflugvelli í New York (JFK) en veitingastöðum og verslunum hefur fjölgað verulega og 11 hliðum bætt hefur verið bætt við til að flýta för farþega í tengiflugi um flugvöllinn.

Í flugstöð 4 er Sky Club Delta, vildaraðstaða með úrval veitinga fyrir farþega á viðskiptafarrými, ásamt Sky Deck þakgarðinum.

Á Keflavíkurflugvelli jafnt og Kennedyflugvelli geta farþegar notfært sér sjálfsafgreiðslu til að prenta út brottfararspjöld og töskumiða til að flýta för sinni. Á vefsíðu félagsins delta.com geta þeir einnig innritað sig í flug og prentað út brottfararspjöld.

Hægt er að bóka beint flug til New York með Delta á vefsíðu félagsins www.delta.com og hjá ferðaskrifstofum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga