flugfréttir

Airbus A320 frá jetBlue rétt náði að forðast árekstur við litla einkaflugvél

- Farþegi segir að flugmennirnir hefi verið skelkaðir eftir lendingu

30. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 21:35

A320 vél jetBlue var í aðflugi að Westchester County flugvellinum sl. sunnudagskvöld (25. janúar) þegar litlu munaði að lítil einkaflugvél hefði rekist á hana

Litlu munaði að tvær flugvélar, Airbus A320 farþegaþota frá jetBlue og lítil einkaflugvél, hefðu skollið saman á flugi yfir New York fylki sl. helgi.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvikið en jetBlue-vélin var í aðflugi að flugvellinum í Westchester sl. sunnudagskvöld eftir flug frá Orlando (MCO) þegar lítil flugvél stefndi beint inn í hliðina á henni.

Fjórir farþegar, sem voru um borð í jetBlue-vélinni, hafa tjáð sig um málið en ein kona sem var farþegi í vélinni, Megan Sikorski að nafni, sagðist hafa horft á litla flugvél út um gluggann koma beint inn í hliðina á vélinni.

Ekki kemur fram hvaða tegund einkaflugvélin var en
vélin var að fljúga eftir sjónflugsreglum er hún var
næstum því búin að fljúga á vél jetBlue

Sikorski sagðist hafa snúið sér undan og beygt sig í kjöltu móður sinnar og gripið í farþegann við hlið sér sem voru hennar fyrstu viðbrögð en flugmenn vélarinnar réttu náðu að hækka flugið til að forðast árekstur.

Sikorski sagði í viðtali á 7online.com að hún hefði heyrt hávaðann frá hinni vélinni er hún þaut framhjá undir vélinni og þá sagði einn farþegi að flugmennirnir hefðu verið skelkaðir á svipinn er þeir komu út úr stjórnklefanum eftir lendingu en þeir sögðu að þarna hefði einhver verið að fljúga "glannalega" í lofthelginni.

Sikorski og móðir hennar sendu skilaboð til jetBlue til að hrósa snöggum viðbrögðum flugmannanna en óskuðu einnig eftir svari við því hvernig svona gat gerst en jetBlue svaraði mæðgunum og staðfesti félagið atvikið og hrósaði flugmönnunum. Félagið tók einnig fram að flugmenn jetBlue væru með þeim bestu í flugiðnaðinum.

Brot úr tölvupósti sem jetBlue svaraði til mæðgnanna

FAA segir að árekstrarviðvörun hafi ekki farið í gang sökum þess hversu lítil hin vélin en flugumferðarstjórar létu flugmennina vita að óþekkt flugvél væri mjög nálægt vélinni en flugmennirnir komu auga á vélina og voru að hækka flugið þegar hún kom aðvífandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga