flugfréttir
EasyJet vill hefja flug um Heathrow
- Lágfargjaldarfélagið breska styður þriðju flugbrautina á LHR
EasyJet flýgur um Gatwick, Stansted og Luton en ekki um Heathrow-flugvöll
EasyJet hefur lýst yfir stuðningi við stækkun Heathrow-flugvallar og sagt að félagið myndi fljúga um þennan stærsta flugvöll Bretlands ef þriðja flugbrautin yrði að veruleika.
Breskir kaupsýslumenn og háttsettir aðilar í bresku efnahagslífi eru einróma um að mikil þörf sé á nýrri flugrbraut
til að auka framboð á farþegaflugi til og frá landinu til að tryggja áframhaldandi grósku í bresku efnahagslífi
en sérstök flugvallarnefnd vinnur að því að meta hentugasta kostinn í flugvallarvandanum.
EasyJet, sem flýgur um Luton-flugvöll, Gatwick og Stansted-flugvöll, flýgur ekki um Heathrow þar sem hann er töluvert
dýrari og hefur hærri flugvallargjöld en hinir flugvellirnir þrír sem tilheyra London fyrir utan London City-flugvöllinn.
EasyJet segir að mögulega myndi félagið geta flogið frá Heathrow til 19 áfangastaða en fargjöld easyJet eru að meðaltali
40 prósent ódýrari en hjá öðrum flugfélögum sem bjóða upp á fulla þjónustu.
Stjórn Heathrow-flugvallar er í skýjunum yfir stuðningi frá easyJet en Gatwick-flugvöllur er hneykslaður yfir þessum
tíðindum þar sem sá flugvöllur berst fyrir því að verða fyrir valinu sem lausnin í vandanum með nýrri flugbraut en Gatwick
hefur aðeins eina braut.
Stjórn Gatwick-flugvallar segir að mun minni umhverfisspjöll yrðu við framkvæmdir á nýrri flugbraut á þeim flugvelli
auk þess sem færri yrðu fyrir barðinu á hávaðamengun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.