flugfréttir

Þrír starfsmenn reknir fyrir að hafa leyft farþegum að ýta vélinni sem fraus í Síberíu

31. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 14:40

Vélin var af gerðinni Tupolev Tu-134 og fóru 70 manns út að ýta eftir að vélin fraust föst í 51 stiga frosti

Þrír flugvallarstarfsmenn sem tóku þátt í því að ýta Tupolev Tu-134 farþegaþotu sem hafði frosið í bremsu á flugvellinum í síberíska bænum Igarka í nóvember 2014, hafa verið reknir úr starfi í kjölfar atviksins.

Þetta sagði saksóknari síberíska samgönguráðuneytisins í gær en þá hefur öryggisfulltrúa vallarins verið refsað auk starfsmanns í flugvallarþjónustu, vaktmanni á flughlaði auk eins flugþjóns en flugþjónninn og öryggisstarsmaður vallarins hefur verið gert að greiða 2.700 krónur í sekt.

Mikil óánægja ríkir meðal þeirra sem hafa þjáð sig um uppsagnirnar á síberískum samfélagsmiðlum og segja að fullhart sé í árina tekið þrátt fyrir að starfsmennirnir hafi brotið verklagsreglur um öryggi.

Atvikið átti sér stað þann 26. nóvember er bremsur á Tupolev Tu-134 vél UTair frusu fastar fyrir brottför en vélin var í þann mund að fara í loftið frá flugvellinum í bænum Igarka þegar frostið hafði farið niður í - 51°C gráður.

Dráttarbíll vallarins gat ekki hjálpað til við að ýta vélinni en 70 manns voru um borð og fór dágóður hópur hraustra manna út að ýta en það er þó ekki löglegt vegna hættu á að skemmdir komi á klæðningu vélarinnar sem gætu stofnað flugöryggi í hættu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga