flugfréttir

6 tonnum of þungar Dreamliner-vélar á hálfvirði - Kaupendur mögulega fundnir

- Hafa staðið á athafnasvæði Boeing frá árinu 2010

24. febrúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 22:05

Svo gæti verið að Boeing sé búið að finna kaupanda fyrir allar vélarnar

Svo virðist sem að Boeing hafi tekist að finna kaupendur fyrir fyrstu Dreamliner-vélarnar sem voru smíðaðar árið 2010 en þær hafa staðið á Paine Field í 5 ár.

Um er að ræða 11 Dreamliner-vélar af gerðinni Boeing 787-8 en samkvæmt heimildum eru vélarnar allt að 6 tonnum þyngri en venjuleg Dreamliner-vél af sömu tegund og er flugþol þeirra því 1.800 kílómetrum styttra.

Sagt er að Boeing hafi fundið kaupendur fyrir 10 vélar og munu vélarnar fara með 50% afslætti en aðilar sem kunnugir eru málinu segja að hver vél mun fara á um 13 milljarða króna en fullt listaverð á Boeing 787-8 eru 28 milljarðar króna.

Vélarnar ellefu hafa staðið á Paine Field í 5 ár

Fram kemur að Ethiopian Airlines sé í viðræðum við Boeing um kaup á átta eintökum af fyrstu vélunum sem voru smíðaðar og þá hefur Alltumflug.is greint frá því að Air Austral muni taka tvær vélar.

Vélarnar ellefu voru sagðar hafa verið lifandi dæmi um þau vandamál sem komu upp við framleiðslu á Dreamliner-vélunum en þær hafa staðið á svæðinu með 7 tonna lóð hangandi úr sitthvorum vængnum til að halda jafnvægi.

Mynd af vélunum úr loftið

"Boeing sagði að það sé markaður fyrir þessar vélar þótt þær séu of þungar og fljúga ekki eins langt og það virðist vera að ganga upp hjá þeim", segir Howard Rubel, ráðgjafi hjá Jefferies LLC í New York.

Fyrir utan vélarnar tíu þá er ein önnur Dreamliner-vél sem Boeing er að nota fyrir flugprófanir sem er innréttuð sem VIP einkaþota.

"Boeing er að vinna að því að koma þremur vélum í flughæft ástand", segir Uresh Sheth, aðili sem heldur úti vefsíðu sem fylgist með framleiðslu á Dreamliner-vélunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga