flugfréttir

Risaþota Air France lenti í Manchester - Vinnutími áhafnarinnar á þrotum

- Bretar um borð áttu að fljúga áfram Parísar til að taka flug til baka til Bretlands

25. febrúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 14:29

Risaþota Air France á flugvellinum í Manchester í gær

Airbus A380 risaþota frá Air France neyddist til að lenda á flugvellinum í Manchester í gær á leið sinni til Parísar frá New York þar sem vaktartími áhafnarinnar var á þrotum og urðu flugmennirnir að taka út 7 tíma hvíld samkvæmt lögum.

Breskir farþegar voru fyrir miklum vonbrigðum er þeim var tjáð að þeir gætu ekki yfirgefið vélina í Manchester og þurftu að bíða fram á kvöld til að halda áfram til Parísar til að taka flug til baka til Betlands - og það sama gilti um eina konu sem sá nánast húsið sitt út um gluggann þar sem hún býr rétt hjá Manchester-flugvellinum.

Fluginu seinkaði um 4 klukkustundir í New York þar sem vélin hafði beðið í nokkra tíma í biðröð eftir afísingu á Kennedy en Air France hafði tilkynnt farþegum að önnur áhöfn yrði send til Manchester til að fljúga vélinni áfram til Parísar um leið og hún myndi lenda.

Farþegarnir í biðsal á Manchester-flugvelli eftir að hafa beðið í 7 tíma um borð í risaþotunni

Er vélin lenti í Manchester kom hinsvegar babb í bátinn þar sem við reglubundna athugun komu í ljós atriði í farþegarýminu sem voru í ólagi. Air France sagðist þá ætla að senda þrjár minni vélar til að sækja farþegana en ekkert varð úr því að lokum en farþegar fengu loks að fara frá borði um kvöldmatarleytið.

Ein kona um borð neitaði að halda áfram frá Manchester til Parísar í þeim tilgangi að taka flug til baka til Manchester og fór hún heim án farangursins sem var um borð í vélinni.

"Ég reyndi að segja þeim að ég bý þarna í götunni hinumegin við flugbrautina - má ég fara frá borði", segir konan.

"Við vorum þrettán farþegar sem neituðu að halda áfram sem búum í Bretlandi svo þeir leyfðu okkur að fara heim að lokum".

Air France segir að flugmennirnir hafi vonast til að háloftavindar myndu feykja þeim hraðar yfir Atlantshafið svo þeir myndu ná til Parísar áður en löggildur vinnutími þeirra væri á enda en svo varð ekki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga