flugfréttir
Bombardier frestar jómfrúarflugi CS300
CS300 kemur á markaðinn árið 2016
Jómfrúarflugi Cseries CS300 vélarinnar var í gær frestað en vélin átti í dag að fljúga sitt fyrsta flug frá Mirabel-flugvellinum nálægt Montreal.
Bombardier segir að ástæðan sé veðrið sem er ekki eins og best var á kosið en reynt verður að fljúga vélinni á næstu dögum en kanadíski flugvélaframleiðandinn fékk í seinustu viku leyfi frá flugmálayfirvöldum
fyrir jómfrúarfluginu.
CS300 er stærri útgáfan af CSeries-vélinni en minni tegundin, CS100, flaug sitt fyrsta flug í september
árið 2013 en mikil seinkun hefur orðið á þróuninni á vélunum sem er gert að eta kappi
við Airbus A320neo og Boeing 737 MAX.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.