flugfréttir
Furstadæmin leyfa aftur flug til Íraks
Boeing 737-800 vél flydubai
Flugmálayfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa gefið flugfélögum í landinu leyfi til þess að hefja flug til Íraks að nýju eftir atvik sem átti sér stað þann 26. janúar sl. er skotið var á farþegaþotu af gerðinni Boeing 737-800 frá flydubai sem var í lendingu á flugvellinum í Baghdad.
Tveir farþegar um borð í vélinni slösuðust lítillega er byssukúlur hæfðu vélina sem olli einnig skemmdum
á skrokknum en ekki hefur komið í ljós hverjir það voru sem skutu á vélina.
Emirates ætlar sér að hefja flug að nýju til Baghdad þann 1. mars en að minnsta kosti sjö flugfélög
hættu að fljúga til borgarinnar eftir atvikið en Turkish Airlines og Middle East Airlines hófu aftur flug til
Baghdad nokkrum dögum eftir árásina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.