flugfréttir
Svona er áætlað að Keflavíkurflugvöllur muni líta út árið 2040
- Isavia birtir niðurstöður úr hönnunarsamkeppni um þróun Keflavíkurflugvallar
Svona myndi Keflavíkurflugvöllur koma til með að líta út árið 2035
Hönnunarstofan Nordic - Office of Architecture í Noregi varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um gerð uppbyggingar- og þróunaráætlunar (Masterplan) Keflavíkurflugvallar til næstu 25 ára.
Sýning á tillögum sem bárust frá 6 alþjóðlegum hönnunarstofum hefur verið sett upp á skrifstofum Isavia á þriðju hæð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og verður hún opin almenningi kl. 9 – 16 alla virka daga til 20. mars næstkomandi.
Vinningstillagan þótti skara fram úr varðandi sjálfbærni og skipulags- og umhverfismál auk þess sem skýr stefna er sett í tekjusköpun á uppbyggingartíma og rík árhersla er á samráð við hagsmunaaðila og nærsamfélag flugvallarins. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun flugstöðvarinnar til norðurs og lagningu nýrrar norður-suður flugbrautar vestan við flugvöllinn í framtíðinni.
Tölvugerð mynd af hönnunartillögu Nordic - Office of Architecture
Vinningshafinn reyndur í þróun flugvalla
Nordic - Office of Arthitecture hefur haft með höndum mörg stór þróunarverkefni svo sem stækkun flugvallanna í Osló, Björgvin og Zuzhny í Rússlandi. Verkefnastjóri tillögunnar er íslenskur og þekkir vel umhverfi Keflavíkurflugvallar. Samstarfsaðili Nordic í verkefninu er ráðgjafarfyrirtækið COWI A/S í Danmörku.
Fyrirtækið mun á næstu mánuðum vinna að frekari útfærslu á tillögum sínum í samráði við Isavia og er stefnt að því að fullmótaðri uppbyggingar- og þróunaráætlun verði skilað í september næstkomandi. Verður hún unnin í nánu samráði við hagsmunaaðila flugvallarins og mun vera leiðarljós í framtíðarskipulagi svæðisins.
Önnur fyrirtæki sem þátt tóku í samkeppninni:
INECO Ingenierta Y Economia del Transporte SA á Spáni
Ramboll A/S í Danmörku
Naco Netherlands Airport Consultants í Hollandi
EC Harris LLP í Bretlandi
Mott MacDonald LTD í Bretlandi
„Valnefnd var einróma í niðurstöðu sinni og var sömuleiðis samhljómur í álitsgjöf hagsmunaaðila um vinningstillögu. Tillaga Nordic er vel útfærð og uppfyllir kröfur í þeim þáttum sem settir voru fram í samkeppnisgögnunum", segir Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia og formaður valnefndar.
Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia og formaður valnefndar
"Sett er fram heildstæð áætlun í umhverfismálum og gert ráð fyrir miklu og góðu samráði við hagsmunaaðila á öllum stigum skipulagsgerðarinnar. Þá er hugsað fyrir því að nýir tekjumöguleikar opnist í hverjum framkvæmdaáfanga og að tækifæri til tekjuöflunar opnist um leið og afkastageta er aukin".
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.