flugfréttir
A380 mun greiða sig upp á þessu ári
Airbus A380
Airbus hefur tilkynnt um að framleiðslan á A380 muni greiða sig upp á þessu ári en risaþotan flaug sitt fyrsta flug árið 2005 og var Singapore Airlines fyrsta félagið til að fá vélina afhenta árið 2007.
Airbus afhenti 30 risaþotur árið 2014 en hinsvegar barst engin pöntun í vélina. Að sögn Tom Enders, framkvæmdarstjóra Airbus Group, er verkefnið komið á það stig að ekki er verið að afhenda nýjar vélar lengur
með tapi.
Fyrir lok janúar átti Airbus eftir að smíða 164 risaþotur og mun Emirates taka við 140 af þeim vélum. Fimm viðskiptavinir hafa enn ekki fengið sínar Airbus A380 afhentar sem er Amadeo, Virgin Atlantic, Transaero, Air Austral og einn ónafngreindur viðskiptavinur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.